Sigurður Bragi og Ísak unnu Reykjavíkurrallið

Sigurður Bragi og Ísak sprautuðu kampavíninu hraustlega þegar þeir komu …
Sigurður Bragi og Ísak sprautuðu kampavíninu hraustlega þegar þeir komu í mark við Austurvöll. mbl.is/GSH

Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson, sem óku á MMC Lancer Evo5, unnu Reykjavíkurrallið, sem nú er einnig kennt við Pirelli. Með sigrinum tryggðu þeir Sigurður Bragi og Ísak sér einnig Íslandsmeistaratitilinn í rallakstri þetta árið.

Guðmundur Guðmundsson og Jón Bergsson á Subaru Impreza RS urðu í 2. sæti og Ragnar Einarsson og Steinar Sturluson á Audi 80 enduðu í þriðja sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka