Knattspyrnumaðurinn Garðar Jóhannsson er genginn til liðs við sitt gamla félag, Stjörnuna, á nýjan leik og skrifaði hann undir tveggja ára samning við Garðabæjarliðið á fréttamannafundi sem haldin var í höfuðstöðvum Stjörnumanna nú í hádeginu.
Garðar er 30 ára gamall sóknarmaður sem hóf feril sinn með Stjörnunni. Hann fór þaðan til KR og lék um tíma með Val. Hann var á mála hjá Fredrikstad í Noregi, Hansa Rostock í Þýskalandi og hjá Strømsgodset í Noregi þar sem hann varð bikarmeistari á síðustu leiktíð en í millitíðinni fór hann til Stjörnunnar lék nokkra leiki með liðinu á síðustu leiktíð.
Garðar er fjórði leikmaðurinn sem Stjörnumenn fá til liðs við sig fyrir átökin í sumar. Hinir þrír voru makvörðurinn Ingvar Jónsson sem kom frá Njarðvík, Hörður Árnason sem kom að láni frá HK og Ólafur Karl Finsen sem er í láni frá hollenska liðnu Az Alkmaar.