Fylkir fékk ódýrt stig í Árbænum

Stjörnumenn sækja Fylkismenn heim.
Stjörnumenn sækja Fylkismenn heim. Kristinn Ingvarsson

Fylkismenn fengu mikið fyrir sinn snúð í Árbænum þegar þeir frekar ósannfærandi gerðu 3:3 jafntefli gegn Stjörnunni þegar leikið var í 13. umferð Pepsi-deildar karla.

Fyrri hluti fyrri hálfleiks var afar daufur þó Ellert Hreinsson skoraði á 10. mínútu en um fyrri hálfleikinn miðjan færðist meira fjör í leikinn með jöfnunarmarki Jóhanns Þórhallssonar á 34. mínútu og Mark Doninger kom Stjörnunni í 2:1 en hann kom inn á fyrir Garðar Jóhannsson.

Á 63. mínútu jafnaði síðan Davíð Þór Ásbjörnsson óvænt en tíu mínútum síðar kom Halldór Orri Björnsson Stjörnunni í 3:2.  Hinsvegar liðu aðrar tíu mínútur þar til Ingimundur Níels Óskarsson jafnaði. Það er síðan helst ekki í fréttum að enginn var rekinn því þrír fuku útaf í síðasta leik liðanna.  

Þar með gerði Stjarnan sitt sjöunda jafntefli í 13 leikjum.

Fylkir og Stjarnan mætast í 13. umferðar úrvalsdeildar karla, Pepsi-deildinni, á Fylkisvelli kl. 19.15. Fylgst er með leiknum í beinni textalýsingu á mbl.is.

Lið Fylkis: Bjarni Þórður Halldórsson (m) – Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Finnur Ólafsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Ingimundur Níels Óskarsson, Jóhann Þórhallsson, Björgólfur Takefusa, Kjartan Ágúst Breiðdal, Tómas Þorsteinsson, Oddur Ingi Guðmundsson, Elís Rafn Björnsson.

Varamenn: Kristján Finnbogason (m), Magnús Þórir Matthíasson, Andri Már Hermannsson, Rúrik Andri Þorfinnsson, Andri Þór Jónsson, Styrmir Erlendsson, Atli Már Þorbergsson.

Lið Stjörnunnar:    Ingvar Jónsson (m), Tryggvi Sveinn Bjarnason, Jóhann Laxdal, Atli Jóhannsson, Daníel Laxdal (f), Halldór Orri Björnsson, Alexander Scholz, Hörður Árnason, Ellert Hreinsson, Kennie Chopart, Garðar Jóhannsson.

 Varamenn: Arnar Darri Pétursson (m), Hilmar Þór Hilmarsson, Bjarki Páll Eysteinsson, Sindri Már Sigurþórsson, Gunnar Örn Jónsson, Snorri Páll Blöndal, Mark Doninger.

Fylkir 3:3 Stjarnan opna loka
90. mín. Leik lokið +3.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert