Kennie Chopart leysti hnútinn

Fylkismennirnir Elís Rafn Björnsson og Finnur Ólafsson sækja að Veigari …
Fylkismennirnir Elís Rafn Björnsson og Finnur Ólafsson sækja að Veigari Páli Gunnarssyni í leiknum í kvöld. mbl.is/Eggert

Eftir slakan fyrri leik gegn Fylki í Árbænum tóku Stjörnumenn við sér en það var ekki fyrr en undir lokin að Kennie Chopart, sem kom inná sem varamaður á 65. mínútu gerði það sem félagar hans voru endalaust að basla við - skoraði sigurmarkið í 1:0 sigri þegar þriðja umferð Pepsi-deildar karla fór fram í kvöld.

Fylkismenn voru mun sókndjarfari fram af en Stjarnan fékk eitt færi þegar Garðar Jóhannsson komst í gegn, honum tókst ekki að gera sér mat úr því. Eitthvað voru Garðbæingar meira vakandi eftir hlé og Kennie Chopart, sem var nýkominn inná átti hörkuskot sem Bjarni Þórður Halldórsson varði í horn.  Síðan skaut Veigar Páll Gunnarsson í slánna af stuttu færi og loks átti Halldór Orri Björnsson þrumuskot sem Bjarni Þórður varði í horn. Enn sóttu Stjörnumenn og fengu nokkur færin en varamaðurinn Kennie Chopart batt endahnútinn á góða sókn með sigurmarkinu.

Fyrir leikinn hafði Fylkir tapað einum leik og náð einu jafntefli á meðan Stjarnan tapaði fyrsta leik en vann næsta svo þeir eru nú með 6 stig af níu mögulegu og Fylkir enn með sitt eina.

Fylkir:  Bjarni Þórður Halldórsson, Finnur Ólafsson, Davíð Þór Ásbjörnsson, Heiðar Geir Júlíusson, Tryggvi Guðmundsson, Pablo Oshan Punyed Dubon, Tómas Þorsteinsson, Sverrir Garðarsson, Viðar Örn Kjartansson, Elís Rafn  Björnsson, Ásgeir Eyþórsson.
Varamenn: Kristján Finnbogi Finnbogason, Kristján Páll Jónsson, Árni Freyr Guðnason, Hákon Ingi Jónsson, Oddur Ingi Guðmundsson, Andri Þór Jónsson, Egill Trausti Ómarsson.

Stjarnan: Ingvar Jónsson, Jóhann Laxdal, Michael Præst, Atli Jóhannsson, Daníel Laxdal, Halldór Orri Björnsson, Veigar Páll Gunnarsson, Hörður Árnason, Ólafur Karl Finsen, Garðar Jóhannsson, Martin Rauschenberg.
Varamenn: Arnar Darri Pétursson, Tryggvi Sveinn Bjarnason, Aron Grétar Jafetsson, Baldvin Sturluson, Snorri Páll Blöndal, Robert Johann Sandnes, Kennie Knak Chopart.

Fylkir 0:1 Stjarnan opna loka
90. mín. Leik lokið Fjórum mínútum bætt við.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert