Þór/KA tapaði í Meistaradeildinni

Þór/KA tapaði fyrir rússneska liðinu Zorkij, 2:1, í fyrri viðureign liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en leikurinn fór fram á Þórsvellinum á Akureyri í dag.

Rússarnir komust í 2:0 í fyrri hálfleik en varamaðurinn Hafrún Olgeirsdóttir náði að laga stöðuna fyrir Akureyrarliðið þegar hún skallaði í netið.

Síðari leikurinn fer fram í Rússlandi eftir viku og reikna má með að róðurinn verði þungur fyrir norðankonur en markið sem Hafrún skoraði gæti þó reynst mikilvægt.

Þór/KA 1:2 Zorkij opna loka
90. mín. Elena Medved (Zorkij) á skot sem er varið Slappt skot.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert