KV skellti Skagamönnum á Akranesi

Nýliðar KV unnu í kvöld afar óvæntan sigur á Skagamönnum, 1:0, í fyrstu deild karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Norðurálsvellinum á Akranesi.

ÍA mistókst þar með að endurheimta toppsæti deildarinnar og er í öðru sæti með 18 stig en Leiknir R. er á toppnum með 20 stig eftir 9 umferðir.

Það var Kristófer Eggertsson sem skoraði sigurmark KV á 53. mínútu leiksins og Vesturbæingarnir vörðust vel og skipulega eftir það.

KV komst þar meö úr fallsætinu og er með 10 stig eins og BÍ/Bolungarvík en Grindavík með 8 stig og Tindastóll 3 eru í botnsætunum.

Haukar sigruðu Selfoss, 2:0, á Selfossi þar sem Hilmar Rafn Emilsson og Matthías Guðmundsson skoruðu með stuttu millibili seint í leiknum.

Haukar eru þá með 14 stig en Selfyssingar áfram með 11 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert