Fyrri undanúrslitaleikurinn í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu fer fram í kvöld þegar Fylkir tekur á móti Selfossi í Árbænum.
Bæði lið komust áfram eftir vítaspyrnukeppni í átta liða úrslitunum. Fylkir lagði KR, en staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 2:2. Selfoss lagði svo ÍBV þar sem staðan var 1:1 fyrir vítakeppnina.
Bæði lið eru á góðu skriði í Pepsi-deildinni og Fylkir, sem eru nýliðar í deildinni, sitja í öðru sætinu með 20 stig. Selfoss er tveimur sætum neðar með stigi minna.