Veigar Páll Gunnarsson, kunnasti leikmaður Stjörnunnar, sagði við fjölmiðlamenn á Laugardalsvelli í kvödl að erfitt væri að lenda 1:0 undir á móti liði eins og Inter Mílanó.
„Það er náttúrlega erfitt að lenda 1:0 undir á móti svona liði. Við erum að spila á móti Inter Mílanó og við erum bara Stjarnan. Miðað við gæðamuninn á liðunum þá stóðum við okkur bara vel stóran hluta leiksins. Þeir höfðu smá heppni með sér í fyrsta markinu og annað markið í upphafi seinni hálfleiks var hálfgert rothögg,“ sagði Veigar Páll og hann sagðist hafa verið með gæsahúð á vellinum vegna þess mikla stuðnings sem Garðbæingar fengu en uppselt var á leikinn, rúmlega 9.800 miðar.
„Það var magnað að spila í kvöld. Ég þakka fyrir þennan þvílíka stuðning. Ég var með gæsahúð lengi vel í leiknum.“