Emil Hallfreðsson sagði íslensku landsliðsmennina mega vera ósátta við sína frammistöðu í Tékklandi í kvöld þar sem liðið tapaði sínum fyrsta leik í Undakeppni EM í knattspyrnu.
„Þetta var engan veginn nógu gott. Leiðinlegt að þetta fór eins og þetta fór,“ sagði Emil meðal annars við fjölmiðlamenn að leiknum loknum eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.