FH-ingar unnu öruggan 4:0 sigur gegn Víkingi Ólafsvík þegar liðin áttust við í A-deild Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu í Akraneshöllinni.
Guðmann Þórisson og fyrirliðinn Atli Viðar Björnsson skoruðu mörk FH-inga í fyrri hálfleik og í þeim síðari bætti Steven Lennon við tveimur mörkum en hann leysti Atla Viðar Björnsson af í seinni hálfleik.
Staðan í 1. riðli er þá þannig að Fylkir er með 7 stig, HK 6, FH 6, Þróttur R. 4, Breiðablik 1, Víkingur Ó. 1, ÍBV 0 og BÍ/Bolungarvík 0.