ÍBV er komið í undanúrslit bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir afar öruggan sigur á Fylki í Vestmannaeyjum í dag, en lokatölur urðu 4:0 heimamönnum í vil. Fylgst var með gangi mála í beinni lýsingu hér á mbl.is.
Eins og tölurnar gefa til kynna spiluðu Eyjamenn hreint út sagt frábærlega. Bjarni Gunnarsson kom Eyjamönnum yfir í fyrri hálfleik og var staðan 1:0 í hálfleik, en Eyjamenn spiluðu svo frábærlega í seinni hálfleik.
Ian Jeffs skoraði annað mark ÍBV og Aron Bjarnason það þriðja með skoti í stöngina og inn. En Eyjamenn voru ekki hættir. Bjarni Gunnarsson skoraði sitt annað mark og fjórða mark liðsins tuttugu mínútum fyrir leikslok og kórónaði frábæran leik sinn í dag.
4:0 lokatölur og Eyjamenn að spila frábærlega þessa dagana og eru komnir í undanúrslit.
ÍBV | 4:0 | Fylkir | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Albert B. Ingason (Fylkir) á skot framhjá | ||||
Augnablik — sæki gögn... |