Jafnt í toppslag

Blikinn Kristinn Jónsson með boltann en danskur sóknarmaður KR-inga, Sören …
Blikinn Kristinn Jónsson með boltann en danskur sóknarmaður KR-inga, Sören Frederiksen, þjarmar að honum. Þórður Arnar Þórðarson

KR og Breiðablik skildu jöfn í í toppslag í 13. umferð Pepsí-deildar karla í knattspyrnu í Frostaskjólinu í kvöld. Blikar fengu betri færi og voru nær sigri þó leikurinn hafi verið jafn.

Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, var maður leiksins og varði nokkrum sinnum vel til að halda sínum mönnum inni í leiknum. 

Þess fyrir utan var fátt um fína drætti í leiknum og KR-ingar fengu eitt alvöru færi þegar Gary Martin skaut beint á Gunnleif úr miðjum teignum um miðja síðari hálfleik. 

Með stiginu halda KR-ingar toppsætinu en FH-ingar geta jafnað þá að stigum með sigri á morgun. Blikar eru áfram í fjórða sæti, stigi á eftir Val. 

Hart barist í kvöld.
Hart barist í kvöld. Þórður Arnar Þórðarson
Blikinn Viktor Örn Margeirsson (bróðir atvinnumannsins Finns Orra Margeirssonar) með …
Blikinn Viktor Örn Margeirsson (bróðir atvinnumannsins Finns Orra Margeirssonar) með boltann í leiknum í kvöld. Þórður Arnar Þórðarson
KR 0:0 Breiðablik opna loka
90. mín. KR fær hornspyrnu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka