Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, fékk áhugaverða spurningu frá konu sinni eftir tapið gegn KR í Kaplakrika í sumar. Tap sem varð vendipunktur Íslandsmótsins. FH vann næstu sjö leiki sína í deildinni en KR og Breiðablik töpuðu stigum.
„Þetta var samstillt átak hjá öllu liðinu. Allir voru staðráðnir í því að snúa hugarfarinu við. Þetta var aðeins of mikið við á móti heiminum,“ sagði Davíð meðal annars þegar mbl.is ræddi við hann í Kaplakrika í dag eftir að Davíð hafði tekið á móti Íslandsmeistaratitlinum.
Viðtalið við Davíð í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði.