FH varð áðan Íslandsmeistari karla í knattspyrnu í sjöunda skipti á undanförnum tólf árum eins og gerð voru ítarleg skil í beinni lýsingu hér á mbl.is og meira verður fjallað um innan skamms.
FH vann Fjölni 2:1 í næstsíðustu umferð deildarinnar og er þar með fimm stigum á undan Breiðabliki fyrir lokaumferð deildarinnar.
Golli tók fjölda mynda af sigurgleðinni í Kaplakrika og hér er hluti þeirra.