Breiðablik hefur samið við spænska knattspyrnumanninn Sergio Carrallo um að leika með liðinu næstu tvö árin. Frá þessu er greint á vefsíðu stuðningsmanna Blika, Blikar.is, í dag.
Carrallo er 21 árs gamall miðju- og kantmaður og var meðal annars áður á mála hjá unglingaliði Real Madrid en þar spilaði einnig með þriðja liði félagsins í spænsku D-deildinni. Hann var síðast á mála hjá Conquense í sömu deild.