Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson hafa valið byrjunarlið Íslands sem mætir Finnlandi í vináttuleik á Military Sports Complex leikvanginum í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag.
Aldursforsetinn Gunnleifur Gunnleifsson stendur á milli stanganna, Eiður Smári Guðjohnsen verður með fyrirliðabandið og nýliðinn Garðar Bergmann Gunnlaugsson verður í framlínunni.
Ingvar Jónsson
Haukur Heiðar Hauksson
Hjörtur Logi Valgarðsson
Ragnar Sigurðsson og Sölvi Geir Ottesen
Eiður Smári Guðjohnsen (fyrirliði) og Rúnar Már Sigurjónsson
Theodór Elmar Bjarnason
Arnór Ingvi Traustason
Garðar Bergmann Gunnlaugsson og Viðar Örn Kjartansson
Leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma og verður leiknum lýst í beinni textalýsingu hér á mbl.is.