Stefan Ljubicic til Brighton

Stefán Alexander Ljubicic í leik með Keflavík síðasta sumar.
Stefán Alexander Ljubicic í leik með Keflavík síðasta sumar. Ljósmynd / keflavik.is

Keflavík hefur samþykkt tilboð Brighton & Hove Albion í framherjann unga Stefan Alexander Ljubicic. Þorsteinn Magnússon, framkvæmdastjóri Keflavíkur, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.

Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Stefans Alexanders, segir í samtali við Fótbolta.net að leikmaðurinn hafi í kjölfarið gert þriggja ára samning við Brighton og samningurinn taki gildi næsta sumar

Stefan Alexander er sonur Zoran Daníel Ljubicic sem lék með Keflavík við góðan orðstír um áraraðir og þjálfaði síðan liðið. Stefan Alexander sem er sextán ára gamall, en hann spilaði þrjá leiki í Pepsi-deildinni í sumar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert