Stjarnan sigraði ÍBV 1:0 í 4. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í dag en leikið var á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Stjarnan er því áfram taplaus.
Fyrir þennan leik hafði ÍBV einungis unnið einn leik en Stjarnan var búin að vinna tvo leiki og gera eitt jafntefli.
Eftir markalausan fyrri hálfleik þá kom Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni á bragðið á 54. mínútu en það reyndist eina mark leiksins.
Lokatölur 1:0 fyrir Stjörnunni sem er í efsta sæti deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar en ÍBV er í 7. sæti með 3 stig.
ÍBV | 0:1 | Stjarnan | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. María Eva Eyjólfsdóttir (Stjarnan) kemur inn á | ||||
Augnablik — sæki gögn... |