„Við erum búnir að áfrýja þessum úrskurði til KSÍ og við vonumst eftir því að niðurstaða fáist á morgun,“ sagði Jónas Gestur Jónasson formaður knattspyrnudeildar Víkings Ólafsvíkur við mbl.is.
Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag var hefur Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðað Pontus Nordenberg leikmann Víkings Ólafsvíkur í eins leiks bann vegna ummæla sem hann lét falla í garð dómara eftir leik liðsins gegn Fylki í Pepsi-deildinni á dögunum.
Áður höfðu þeir Egill Jónsson, Pape Mamadou Faye og Tomasz Luba voru allir úrskurðaðir í eins leiks bann í vikunni vegna fjölda gulra spjalda.
Víkingar eru í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni en Stjarnan er í slagnum um að vinna sér sæti í Evrópukeppninni.