Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, verður í leikbanni á sunnudagskvöldið þegar Ísland mætir Tyrklandi í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvellinum.
Aron fékk gula spjaldið í leiknum gegn Finnum í kvöld og þar sem hann fékk líka gult spjald í leiknum gegn Úkraínu í fyrstu umferðinni er hann kominn í eins leiks bann.