Heimildarmyndinni Jökullinn logar, sem Sölvi og Sævar Guðmundsson gerðu í aðdraganda lokakeppni Evrópumótsins í Frakklandi í sumar, er komin í verslanir á DVD diski.
Sölvi og Sævar fengu óheftan aðgang að landsliðinu og í myndinni fylgja þeir því í gegnum ævintýrið sem endaði með því að liðið komst á EM í knattspyrnu.
Á DVD disknum er í boði eru 120 mínútur af áður óséðu aukaefni og í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Eiður Smári hrellir liðsfélaga sína.