Hörður Björgvin Magnússon var nú rétt í þessu að skora sitt fyrsta A-landsliðsmark þegar hann kom Íslandi yfir gegn Írlandi.
Hörður Björgvin skoraði beint úr aukaspyrnu á 21. mínútu, en hann skrúfaði boltann yfir varnarvegginn og í hægra hornið. Hörður er að spila sinn 9. landsleik. Hann spilaði sinn fyrsta leik í nóvember 2014, og var meðal annars í hópnum á EM í sumar en kom þó ekki við sögu.
Leikur Írlands og Íslands er í beinni textalýsingu sem opna má HÉR.