Íslandsmeistarar FH í knattspyrnu hafa lánað miðjumanninn unga Grétar Snæ Gunnarsson til HK sem leikur í Inkasso-deildinni.
Grétar Snær er tvítugur að aldri og kom töluvert við sögu með FH-liðinu á undirbúningstímabilinu en hefur verið á varamannabekknum í fyrstu leikjum þess í Pepsi-deildinni á þessu tímabili.
Hann lék einn leik með FH í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og einn leik í bikarkeppninni. Grétar Snær hefur leikið með öllum yngri landsliðunum og þar af þrjá leiki með U21 árs liðinu.