Knattspyrnumaðurinn Alex Þór Hauksson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna og gildir samningurinn út tímabilið 2019.
Alex Þór, sem er 18 ára gamall miðjumaður, hefur verið í byrjunarliði Garðabæjarliðsins í öllum leikjum þess á tímabilinu og hefur frammistaða hans vakið mikla athygli.