Tyrkneskir stuðningsmenn eru langt frá því að vera ánægðir með eina helstu stjörnu landsliðsins, Arda Turan sem leikur með Barcelona, eftir 3:0 tapið fyrir Íslandi í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í gærkvöldi.
Arda Turan var tekinn af velli í síðari hálfleik þegar Tyrkir voru þegar þremur mörkum undir, en hann fór glottandi aftur á varamannabekkinn og virtist vel skemmt. Það hefur vakið upp gríðarlega reiði í Tyrklandi.
Arda Turan spilaði sinn 100. landsleik gegn Íslendingum í gær. Hann er þrítugur að aldri og sneri aftur inn í landslið Tyrkja í síðasta mánuði en hann lenti upp á kant við Faith Terim, fyrrverandi landsliðsþjálfara, og hætti að spila með landsliðinu. Rúmeninn Mircea Lucescu tók við þjálfun tyrkneska landsliðsins af Terim í ágúst og fékk hann Turan til að snúa til baka í landsliðið.