Ísland er í riðli með Belgíu og Sviss í A-deild, þeirri efstu, í nýrri Þjóðadeild knattspyrnusambands Evrópu en dregið var nú rétt í þessu.
Dregið var í fjóra þriggja liða riðla í A-deildinni þar sem Ísland var í þriðja styrkleikaflokki. Ísland var dregið fyrst upp úr hattinum í sínum riðli og í kjölfarið komu upp Sviss og Belgía, en síðarnefnda þjóðin var í efsta styrkleikaflokki.
Leikið verður í riðlakeppni Þjóðadeildar með hléum frá 6. september til 20. nóvember í haust. Efsta lið hvers riðils í A-deildinni kemst í lokakeppni mótsins sumarið 2019, en neðsta liðið fellur niður og leikur í B-deild haustið 2020.
A-deild okkar Íslendinga lítur svona út:
Riðill 1: Þýskaland, Frakkland, Holland.
Riðill 2: Belgía, Sviss, ÍSLAND.
Riðill 3: Portúgal, Ítalía, Pólland.
Riðill 4: Spánn, England, Króatía.
B-deildin lítur svona út, en sigurvegararnir fjórir í riðlunum munu tryggja sér sæti í A-deildinni, þeirri efstu. Neðstu fjögur liðin falla hins vegar í C-deildina.
Riðill 1: Slóvakía, Úkraína, Tékkland.
Riðill 2: Rússland, Svíþjóð, Tyrkland.
Riðill 3: Austurríki, Bosnía og Hersegóvína, Norður-Írland.
Riðill 4: Wales, Írland, Danmörk.
C-deildin lítur svona út, en sigurvegararnir fjórir í riðlunum munu tryggja sér sæti í B-deildinni. Neðstu fjögur liðin falla hins vegar í D-deildina.
Riðill 1: Skotland, Albanía, Ísrael.
Riðill 2: Ungverjaland, Grikkland, Finnland, Eistland.
Riðill 3: Slóvenía, Noregur, Búlgaría, Kýpur.
Riðill 4: Rúmenía, Serbía, Svartfjallaland, Litháen.
D-deildin lítur svona út, en sigurvegararnir fjórir í riðlunum munu tryggja sér sæti í C-deildinni.
Riðill 1: Georgía, Lettland, Kasakstan, Andorra.
Riðill 2: Hvíta-Rússland, Lúxemborg, Moldóva, San Marínó.
Riðill 3: Aserbaídsjan, Færeyjar, Malta, Kósóvó.
Riðill 4: Makedónía, Armenía, Liechtenstein, Gíbraltar.