Knattspyrnumaðurinn Bjarni Þór Viðarsson hefur skrifað undir nýjan samning við FH en samningur hans var útrunninn.
Bjarni Þór gerði eins árs samning sem gildir út þetta tímabil. Hann er 29 ára gamall miðjumaður sem sneri aftur heim til FH úr atvinnumennsku árið 2014.
Bjarni hefur verið óheppinn með meiðsli undanfarin ár og kom hann aðeins við sögu í átta leikjum með FH-ingum í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð.