Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir hefur gengið frá félagaskiptum til Íslandsmeistara Þórs/KA í knattspyrnu á ný, en hún varði mark liðsins síðastliðið sumar. Ekki var vitað hvort hún myndi spila fótbolta í sumar.
Bryndís gaf það út síðastliðið haust að hún myndi taka sér pásu frá fótbolta um óákveðinn tíma og sagðist ætla að reyna fyrir sér í frjálsum íþróttum. Hún skipti yfir í Val í vetur og var búin að koma við sögu með liðinu á undirbúningstímabilinu nú í vor, en hefur nú skipt aftur yfir í Þór/KA.
Eftir brotthvarf Bryndísar í haust samdi Þór/KA við Helenu Jónsdóttur og átti hún að verja mark liðsins í sumar. Hún slasaðist hins vegar á hné í leik gegn Stjörnunni í úrslitum Lengjubikarsins í gær og hætta er á að meiðsli hennar séu alvarleg. Varamarkvörðurinn Sara Mjöll Jóhannsdóttir kom í markið í leiknum og varði tvær vítaspyrnur þar sem Þór/KA vann í vítaspyrnukeppni.