Síðasti leikur þriðju umferðar Pepsi-deildar karla í knattspyrnu fer fram í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Víkingi úr Reykjavík. Þegar fyrri viðureignir félaganna eru skoðaðar má segja að algjört jafnræði ríki þeirra á milli.
Stjarnan og Víkingur hafa mæst 14 sinnum í efstu deild frá árinu 1990 þegar Garðabæjarfélagið lék í fyrsta skipti í deildinni. Hvort félag hefur unnið fjóra leiki en sex hafa endað með jafntefli.
Ekki nóg með það, markatalan er líka jöfn en hvort lið hefur skorað 18 mörk í þessum fjórtán leikjum. Þau hafa líka unnið hvort annað tvisvar á hvorum heimavelli og gert þrisvar jafntefli á hvorum, þannig að jafnara getur það ekki verið.
Víkingar höfðu betur í fyrra en þeir unnu nokkuð óvæntan sigur í Garðabænum, 2:1, í fyrri umferðinni. Alex Freyr Hilmarsson og Ragnar Bragi Sveinsson skoruðu fyrir Víking en Jóhann Laxdal fyrir Stjörnuna.
Engu munaði að sömu úrslit yrðu á Víkingsvellinum en þar jafnaði Ævar Ingi Jóhannesson fyrir Stjörnuna, 2:2, í uppbótartíma leiksins. Áður hafði Hólmbert Aron Friðjónsson komið Stjörnunni yfir en Milos Ozegovic og Arnþór Ingi Kristinsson svöruðu fyrir Víking.
Fyrir leikinn í kvöld eru Víkingar með 4 stig, hafa ekki fengið á sig mark þrátt fyrir bras með markverði sína og gætu því verið í öðru sæti að leik loknum. Stjarnan er með eitt stig og bíður enn eftir því að innbyrða fyrsta sigurinn á tímabilinu.