Víkingar fengu aðeins eitt stig yfir Kópavogslækinn er þeir mættu toppliði Breiðabliks eftir markalaust jafntefli þegar liðin mættust í blíðunni á Kópavogsvellinum í kvöld og fram fóru síðustu leikir fjórðu umferðar Íslandsmótsins í knattspyrnu karla – Pepsi-deildinni.
Víkingar voru öflugir í byrjun og héldu svo dampi, fengu hvert hornið á fætur öðru og Arnþór Ingi Kristinsson átti þrumuskot rétt framhjá og síðan skalla af stuttu færi en Gunnleifur í marki Breiðabliks varði með tilþrifum. Eitthvað fikruðu Blikar sig framar á völlinni en mættu þá Halldóri Smára Sigurðssyni og Sölva Geir Ottesen í vörninni en sá síðarnefndi var eins og kóngur á því svæði.
Blikar ætluðu sér meira eftir hlé og Arnþór Ari Atlason, sem kom inná í hálfleik átti gott skot úr vítateig á 47. mínútu og þremur síðar skaut Aron Bjarnason skaut líka framhjá. Fátt var um færi hjá Víkingum og Blikar mun betri að byggja upp sóknar, sem þó strönduðu á miðvörðum Víkinga flest. Undir lokin átti Gísli Eyjólfsson þrumuskot sem small í slánni og niður – allt varð vitlaust því Víkingar með á hreinu að boltinn hefði ekki farið yfir línuna en Kópavogsbúar með á hreinu að boltinn hefði farið inn. Dómarinn sagði nei en nógu flott var skotið. Heldur lá á Víkingum í lokin og Hendrickx átti frábært skot sem var enn betur varið hjá Andreas Larsen.