Lárus Orri hættir með Þórsara

Lárus Orri Sigurðsson og Jóhannes Karl Guðjónsson takast í hendur …
Lárus Orri Sigurðsson og Jóhannes Karl Guðjónsson takast í hendur eftir leik Þórs og ÍA í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Lárus Orri Sigurðsson mun hætta sem þjálfari karlaliðs Þórs í knattspyrnu eftir leiktíðina en frá þessu er greint á heimasíðu Þórsara í kvöld.

Lárus Orri tók við þjálfun Þórsliðsins fyrir tímabilið í fyrra og hafnaði liðið í sjötta sæti í Inkasso-deildinni undir hans stjórn og þegar tveimur umferðum er ólokið í deildinni í ár eru Þórsarar í fjórða sæti og eiga ekki lengur möguleika á að komast upp. Lárus þjálfaði Akureyrarliðið einnig á árunum 2006-10.

Í frétt á vef Þórsara segir:

„Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari meistaraflokks karla, hefur sagt starfi sínu lausu að tímabili loknu.


Lárus hefur unnið gott starf fyrir knattspyrnudeildina þau tvö ár sem hann hefur þjálfað meistaraflokk karla hjá Þór. Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Lárusi fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur.“ 

Fyrr í kvöld var greint frá því á heimasíðu KA að Sr­djan Tufegdzic, þjálfari KA, muni láta af störfum eftir tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert