Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í knattspyrnu, blæs á þann orðróm að hann sé að taka við liði í Pepsi-deildinni.
Í þættinum Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld var Heimir orðaður við þjálfarastöður bæði hjá ÍBV og KA. Ljóst er að KA-menn eru í þjálfaraleit þar sem Tufa hættir eftir tímabilið en framtíð Kristjáns Guðmundssonar, þjálfara ÍBV, er í óvissu. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við ÍBV en uppsagnarákvæði eru í honum að loknu tímabilinu.
„Það er ekkert til í þessu,“ segir Heimir í samtali við netmiðilinn fótbolti.net en hann lét af störfum sem landsliðsþjálfari eftir HM í Rússlandi í sumar.
„Planið er að vera tilbúinn í eitthvað um áramótin eða eitthvað svoleiðis. Ég er að halda mig við það plan sem ég setti mér. Ég er að fara á námskeið og læra. Ég er líka með fyrirlestra og er að reyna að samtvinna þetta.
Mig langar að fara í félagsliðafótbolta aftur. Þá þarf maður smá undirbúningstíma. Það er svolítið mikið öðruvísi en að vera með landslið. Það sem ég geri, ég vil gera það vel,“ segir Heimir við fótbolti.net.