Ian Jeffs er hættur þjálfun kvennaliðs ÍBV. Samningur hans rann út eftir tímabilið sem lauk um helgina og mun Jeffs ekki framlengja hann.
Jeffs staðfestir þetta við fotbolti.net í kvöld. Undir hans stjórn varð liðið bikarmeistari á síðustu leiktíð en endaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar nú í sumar.
Jeffs er öllum hnútum kunnugur hjá ÍBV. Hann spilaði fyrir félagið frá árinu 2003 og til 2016, með nokkrum hléum. Hann hefur stýrt kvennaliðinu síðastliðin fjögur ár.