Bjarni Ólafur Eiríksson, einn af lykilmönnum Íslandsmeistaraliðs Vals í knattspyrnu, er byrjaður að æfa með Hlíðarendaliðinu á nýjan leik.
Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Valsmanna staðfestir í samtali við netmiðilinn 433.is að Bjarni Ólafur sé byrjaður að æfa með liðinu en Bjarni hafði íhugað að leggja skóna á hilluna og hefur ekki æft né spilað með meisturunum á undirbúningstímabilinu.
Bjarni var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á dögunum og þar sagði hann:
„Ég er í fríi sem endar mjög líklega á því að ég hætti í fótbolta. Mér finnst frekar leiðinlegt þegar menn segjast vera hættir og koma svo stuttu seinna og segjast ekki vera hættir.
Ég ákvað að segja að ég væri í fríi en það er mjög líklegt að ég sé hættur í fótbolta. Ef svo fer að ég hætti þá geng ég mjög sáttur frá borði. Þetta er eitthvað sem ég hef ákveðið en frábært, á þessum síðustu árum, að ná tveimur Íslandsmeistaratitlum og tveimur bikarmeistaratitlum.“