Aron Bjarnason, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, hefur gengið til liðs við ungverska liðið Újpest. Frá þessu var greint á heimasíðu félagsins rétt í þessu. Aron mun spila í treyju númer 8 hjá félaginu.
Þrátt fyrir að félagsskiptin séu nú frágengin mun Aron spila þrjá leiki til viðbótar með Breiðabliki. Hann heldur í framhaldinu utan, 22. júlí nk., en keppnistímabilið í Ungverjalandi hefst 2. ágúst.
Újpest hafnaði í fimmta sæti af 12 liðum í efstu deild Ungverjalands á síðasta tímabili, en um er að ræða fornfrægt félag sem stofnað var árið 1885. Frá árinu 1905 hefur liðið aðeins leikið utan efstu deildar í eitt tímabil og leikið meðal þeirra bestu 102 ár í röð.
Aron er 23 ára gamall fjölhæfur miðju- og sóknarmaður og er að spila sitt þriðja tímabil með Blikum. Hann hefur skorað 12 mörk í 50 leikjum með liðinu í efstu deild, þar af fjögur í sumar, en hann kom þangað frá ÍBV þar sem hann spilaði í tvö ár. Þá lék Aron áður með Fram og uppeldisfélagi sínu Þrótti R. Hann á að baki 113 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 24 mörk.