Knattspyrnuþjálfarinn Helena Ólafsdóttir er að eigin ósk hætt með lið ÍA sem leikur í 1. deild kvenna, Inkasso-deildinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍA.
Helena hefur þjálfað ÍA síðustu þrjú ár með Anítu Lísu Svansdóttur sér við hlið, en þær óskuðu báðar eftir því í dag að láta af störfum hjá félaginu. ÍA tapaði á heimavelli fyrir Augnabliki í gær og er í sjötta sæti af 10 liðum í deildinni með 11 stig eftir átta leiki, átta stigum frá toppnum.
Helena hefur víðtæka reynslu af kvennaknattspyrnu. Hún starfaði áður sem þjálfari hjá FK Fortuna í Álasund í Noregi. Þar áður þjálfaði hún meistaraflokk hjá FH, Selfoss, KR og Val. Helena þjálfaði einnig A-landslið kvenna 2003-2004.
Helena var á sínum tíma sigursæll leikmaður og varð margfaldur Íslandsmeistari með KR á árunum 1993-1999. Hún lék einnig með liði ÍA og varð m.a. bikarmeistari með liðinu árið 1992. Helena lék 8 A-landsleiki fyrir Ísland.
„Knattspyrnufélag ÍA óskar Helenu og Anítu velfarnaðar í þeim verkefnum sem þær taka sér fyrir hendur í framtíðinni og þakkar þeim fyrir afar góð störf hjá félaginu undanfarin ár,“ segir í tilkynningu frá félaginu í kvöld.