Brandur Olsen tryggði FH 2:1-sigur á Fylki í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Brandur skoraði bæði mörk FH, það síðara á 90. mínútu. FH-ingar eru áfram í þriðja sæti deildarinnar, nú með 28 stiga en Fylkir er í áttunda sæti með 22.
Fyrri hálfleikur var með rólegra móti í kvöld. Gestirnir lágu til baka og uppspil FH-inga var lengst af hægt og fyrirsjáanlegt.
Þeir fengu þó eitt úrvalsfæri þegar Atli Guðnason skaut boltanum í þverslá á 41. mínútu eftir frábæran undirbúning Morten Beck.
Fjörið var meira í seinni hálfleik. Ólafur Ingi Skúlason kom Fylki yfir eftir fimm mínútna leik í hálfleiknum þegar hann stangaði boltann í markið eftir hornspyrnu.
Við mark Fylkis hresstust FH-ingar. Morten Beck klúðraði dauðafæri þremur mínútum eftir markið þegar hann skallaði boltann beint í Stefán Loga í marki Fylkis af eins metra færi.
Brandur Olsen jafnaði svo leikinn á 61. mínútu. Hann þrumaði þá að marki, töluvert utan vítateigs og boltinn hafnaði í markhorninu á marki Fylkis. FH-ingar fögnuðu en Stefán Logi hefði án vafa átt að gera mun betur.
Brandur tryggði FH svo sigurinn þegar hann skoraði með góðu skoti á 90. mínútu. Sóknarmaðurinn Morten Beck var rekinn af velli í uppbótartíma þegar hann virtist stíga á andlitið á Ólafi Inga Skúlasyni.