„Mér finnst við hafa tapað tveimur stigum því við vorum með þennan leik þar til þeir skoruðu jöfnunarmarkið og það var klaufalegt,“ sagði hinn 19 ára gamli Brynjólfur Darri Willumsson í samtali við mbl.is í kvöld en hann skoraði tvívegis fyrir Breiðablik á Kópavogsvellinum.
Liðin skildu jöfn 3:3 en Valur komst í 2:0 og þá skoraði Breiðablik þrjú í röð. „Mér fannst við gera og sýna karakter með því að koma til baka eftir slæma byrjun. Við vorum með tök á þessu fannst mér þangað til við fengum á okkur hálfgert aulamark. Við ræddum málin í stöðunni 2:0 og vildum rífa okkur í gang og gera þetta almennilega. Við fórum með fullt sjálfstraust út í seinni hálfleik eftir að hafa skorað tvö mörk fyrir hlé. En þeir fengu eitt langt innkast þar sem boltinn fór inn á teiginn, út af, fyrirgjöf og mark.“
Brynjólfur nýtti tækifærið vel í byrjunarliðinu í kvöld og skoraði fyrsta og þriðja mark Breiðabliks. „Ég er alltaf með sjálfstraustið í botni en geri mitt besta í að spila fyrir liðið. Það komu tvö mörk í dag. Það var mjög sætt. Ég tók mig til og ákvað að vera með Loga Tómassyni í aðdraganda leiksins. Hann hefur skorað tvö mörk á móti Val og ég ákvað að fara eftir hans rútínu í dag og það virkaði greinilega,“ sagði Brynjólfur og glotti.