HK og Víkingur slíta samstarfinu

Leikmenn HK/Víkings fagna marki í leik í úrvalsdeildinni í sumar.
Leikmenn HK/Víkings fagna marki í leik í úrvalsdeildinni í sumar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Íþrótta­fé­lög­in HK í Kópa­vogi og Vík­ing­ur í Reykja­vík hafa ákveðið að slíta sam­starfi sínu um rekst­ur meist­ara­flokks, 2. flokks og 3. flokks kvenna í knatt­spyrnu sem hef­ur staðið sam­fleytt frá alda­mót­um.

Lið HK/​Vík­ings féll úr úr­vals­deild­inni í haust og fé­lög­in hafa samið um að Vík­ing­ur muni taka sæti þess í 1. deild­inni á næsta tíma­bili en HK muni senda lið í 2. deild kvenna.

Þessi yf­ir­lýs­ing var send frá HK/​Vík­ingi fyr­ir stundu:

Knatt­spyrnu­deild­ir HK og Vík­ings hafa tekið sam­eig­in­lega ákvörðun um að slíta sam­starfi um rekst­ur meist­ara­flokki, 2. flokki og 3. flokki kvenna.  

HK og Vík­ing­ur hafa átt í ára­löngu og far­sælu sam­starfi um rekst­ur kvenna­flokka i knatt­spyrnu, en sam­starfið um meist­ara­flokk nær aft­ur til árs­ins 2001. Liðið hef­ur fjór­um sinn­um spilað í efstu deild, tvisvar sinn­um unnið 1. deild­ina og þess utan fimm sinn­um tekið þátt í úr­slita­keppni 1. deild­ar. 

Það hef­ur aldrei borðið skugga á sam­starfið og móður­fé­lög­in hafa alla tíð staðið þétt á bak við liðið. Þau eru því þung spor­in, nú þegar ákveðið hef­ur verið að þau gangi hvort sína leið. Fyr­ir því eru nokkr­ar ástæður, en sú aug­ljósa staðreynd að Foss­vog­ur­inn er ekki leng­ur sam­eig­in­legt svæði liðanna og flutn­ing­ur HK í Sala- og Kór­a­hverfi og koma Vík­ings inn á gamla Fram-svæðið veg­ur þar þungt. 

Nú tek­ur við upp­bygg­ing­ar­starf hjá báðum fé­lög­um, en þau hafa tekið ákvörðun um að Vik­ing­ur haldi sæti HK/​Vík­ings í 1. deild, en HK hefji sína veg­ferð í 2. deild, en haldi jafn­framt sæti liðanna i A-deild 2. flokks. Það er ein­læg von aðstand­enda HK/​Vík­ings að liðunum megi farn­ast vel og að þó vænta megi að hart verði tek­ist á í framtíðarleikj­um fé­lag­anna þá verði þess ánægju­lega tíma sem þau hafa átt sam­an ávallt minnst af virðingu.  

 

 

 

 

 

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert