Rakel náði stórum áfanga í Liepaja

Rakel Hönnudóttir.
Rakel Hönnudóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rakel Hönnudóttir landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Reading í ensku úrvalsdeildinni náði stórum áfanga í kvöld þegar hún kom inná sem varamaður í leik Lettlands og Íslands í undankeppni EM í Liepaja.

Rakel lék í kvöld sinn 100. A-landsleik fyrir Íslands hönd og hún er tíunda landsliðskonan frá upphafi sem nær þessum áfanga. Fyrr á árinu komust Hallbera Guðný Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir í þennan hóp en þær eru báðar með í leiknum.

Rakel, sem er 31 árs gömul, hefur leikið með A-landsliðinu í hálft tólfta ár en fyrsta leikinn spilaði hún gegn Póllandi í Algarve-bikarnum í Portúgal í mars árið 2008. Rakel hefur skorað 9 mörk í þessum 100 landsleikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert