Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir eru knattspyrnufólk ársins 2019 hjá KSÍ en það er stór hópur af fyrrverandi landsliðsfólki, þjálfarar og forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni sem taka þátt í kjörinu.
Segja má að Gylfi og Sara hafi verið með þessa titla í áskrift því bæði eru þau kjörin fimmta árið í röð. Gylfi hefur nú verið valinn níu sinnum á síðustu tíu árum og Sara sex sinnum á síðustu sjö árum.
Í karlaflokki varð Jóhann Berg Guðmundsson í öðru sæti og Ragnar Sigurðsson í þriðja sæti.
Í kvennaflokki varð Glódís Perla Viggósdóttir í öðru sæti og Elín Metta Jensen í þriðja sæti.