Knattspyrnumaðurinn Höskuldur Gunnlaugsson mun líklega spila með Breiðabliki í sumar en hann lék í Kópavoginum síðasta sumar að láni frá Halmstad í Svíþjóð. Hann vill ekki snúa aftur til Halmstad en Höskuldur greindi frá þessu í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net.
„Ég er enn þá á samningi hjá Halmstad en fer ekki þangað aftur, það er 99% klárt. Lánssamningurinn við Breiðablik var út árið 2019 og nú er ég samningsbundinn Halmstad til júní. Það er í vinnslu og ferli að ganga frá riftunarákvæði þar,“ sagði Höskuldur meðal annars í viðtalinu. Svo bætti hann við að „allar líkur eru á því“ á hann fari aftur í Breiðablik.
Höskuldur kannast vel við sig í Kópavogi enda uppalinn hjá Breiðabliki þar sem hann var í stóru hlutverki áður en hann var seldur til Halmstad um mitt sumarið 2017. Hann spilaði 20 leiki fyrir Blika í efstu deild á síðustu leiktíð og skoraði í þeim sjö mörk en liðið hafnaði í öðru sæti.