Ísland hafði betur gegn Kanada í vináttuleik, 1:0, í fyrsta leik ársins hjá A-landsliði karla í fótbolta á Orange County Great Park-vellinum í Irvine í Kaliforníu í nótt.
Hólmar Örn Eyjólfsson skoraði sigurmarkið á 21. mínútu. Hann skoraði þá af öryggi úr teignum eftir hornspyrnu Davíðs Kristjáns Ólafssonar en úr henni fór boltinn beint í þverslána og hrökk þaðan fyrir fætur Hólmars á markteignum.
Ísland var töluvert sterkara liðið í fyrri hálfleiknum og skapaði sér fín færi. Höskuldur Gunnlaugsson var líflegur og átti skot í utanverða stöngina og Viðar Örn Kjartansson komst í gott færi í teignum, en Maxime Crépeau varði vel frá honum. Þá átti Kjartan Henry Finnbogason skot rétt fram hjá.
Kanadamenn voru sterkari í upphafi seinni hálfleiks og þurfti Hannes Þór Halldórsson að verja í fyrsta skipti snemma í hálfleiknum, en hann greip þá örugglega frá Jonathan Osorio. Hann þurfti að taka betur á því á 87. mínútu þegar Charles-Andreas Brym slapp einn í gegn. Hannes var snöggur af línunni og varði vel.
Varamaðurinn Kristján Flóki Finnbogason fékk besta færi Íslands í seinni hálfleik en Crépeau varði ágætt skot hans úr teignum virkilega vel. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki.
Daníel Leó Grétarsson og Höskuldur Gunnlaugsson voru í byrjunarliðinu og léku sína fyrstu leiki og varamennirnir Stefán Teitur Þórðarson, Alfons Sampsted og Bjarni Mark Antonsson sömuleiðis, en þeir komu inn á í seinni hálfleik.