Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekki upp á marga fiska á Laugardalsvelli í dag þar sem starfsmenn Knattspyrnusambands Íslands unnu meðal annars að því að moka snjó af vellinum. Rúmir tveir mánuðir eru í að Ísland taki á móti Rúmeníu í umspili fyrir EM karla í knattspyrnu.
Greint hefur verið frá því að KSÍ hafi skilað inn áætlun til Knattspyrnusambands Evrópu þess efnis að leikið verði á Laugardalsvelli 26. mars.
„Eins og kunnugt er þá er enginn hiti í vellinum og því er gripið til ýmissa ráðstafana,“ segir í Twitter-færslu KSÍ frá því í dag þar sem sjá má starfsmenn moka snjó og reyna að losa bleytu af vellinum.
Starfsmenn Laugardalsvallar vinna hörðum höndum (myndir teknar á sunnudag). Umspilsleikurinn við Rúmeníu er 26. mars. Eins og kunnugt er þá er enginn hiti í vellinum og því er gripið til ýmissa ráðstafana. #fyririsland #Laugardalsvöllur #þjóðarleikvangurinn pic.twitter.com/efkeb2wNLR
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) January 19, 2020