Erik Hamrén landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu hefur valið leikmannahópinn fyrir leikina gegn Ungverjalandi, Danmörku og Englandi sem leiknir verða 12. til 18. nóvember.
Hópurinn var tilkynntur nú eftir hádegið en leikurinn gegn Ungverjalandi á fimmtudaginn kemur, 12. nóvember, er úrslitaleikur umspilsins fyrir sæti á Evrópumeistaramótinu á næsta ári. Leikirnir við Danmörk og England, 15. og 18. nóvember, eru í Þjóðadeild UEFA.
Mikael Anderson og Jón Dagur Þorsteinsson eru ekki í hópnum en 21-árs landsliðið leikur þrjá síðustu leiki sína í undankeppni EM á sama tíma. Arnór Sigurðsson er hinsvegar í hópnum á ný en hann missti af leikjunum í október vegna verkefnis 21-árs landsliðsins og meiðsla í kjölfarið. Allir aðrir sem voru í hópnum í október eru í honum aftur núna og því útlit fyrir að Erik Hamrén geti teflt fram sterkasta mögulega liðinu í Búdapest.
MARKVERÐIR:
Hannes Þór Halldórsson | Valur | 72 leikir
Rúnar Alex Rúnarsson | Arsenal | 6 leikir
Ögmundur Kristinsson | Olympiacos | 16 leikir
VARNARMENN:
Birkir Már Sævarsson | Valur | 93 leikir, 2 mörk
Hjörtur Hermannsson | Bröndby | 17 leikir, 1 mark
Ragnar Sigurðsson | FC Köbenhavn | 96 leikir, 5 mörk
Sverrir Ingi Ingason | PAOK | 33 leikir, 3 mörk
Kári Árnason | Víkingur R. | 85 leikir, 6 mörk
Hólmar Örn Eyjólfsson | Rosenborg | 17 leikir, 2 mörk
Ari Freyr Skúlason | Oostende | 74 leikir
Hörður Björgvin Magnússon | CSKA Moskva | 32 leikir, 2 mörk
MIÐJUMENN:
Guðlaugur Victor Pálsson | Darmstadt | 20 leikir
Arnór Sigurðsson | CSKA Moskva | 10 leikir, 1 mark
Arnór Ingvi Traustason | Malmö | 37 leikir, 5 mörk
Birkir Bjarnason | Brescia | 89 leikir, 13 mörk
Rúnar Már Sigurjónsson | Astana | 28 leikir, 1 mark
Gylfi Þór Sigurðsson | Everton | 76 leikir, 24 mörk
Jóhann Berg Guðmundsson | Burnley | 76 leikir, 8 mörk
Aron Einar Gunnarsson | Al Arabi | 89 leikir, 2 mörk
SÓKNARMENN:
Viðar Örn Kjartansson | Vålerenga | 27 leikir, 3 mörk
Jón Daði Böðvarsson | Millwall | 52 leikir, 3 mörk
Kolbeinn Sigþórsson | AIK | 59 leikir, 26 mörk
Albert Guðmundsson | AZ Alkmaar | 15 leikir, 3 mörk
Alfreð Finnbogason | Augsburg | 59 leikir, 15 mörk