Englendingurinn Kian Paul Williams hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Keflavíkur út tímabilið 2022.
Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en leikmaðurinn gekk til liðs við Keflavík frá Magna á Grenivík fyrur síðasta keppnistímabil.
Hann skoraði fimm mörk í fjórtán leikjum fyrir Keflavík í 1. deildinni, Lengjudeildinni, síðasta sumar en Keflavík var í efsta sæti deildarinnar þegar keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins og leikur því í efstu deild næsta sumar.
Alls á hann að baki 24 meistaraflokksleiki hér á landi fyrir Magna og Keflavík þar sem hann hefur skorað átta mörk en hann er uppalinn hjá Leicester á Englandi.
„Kian spilaði hrikalega vel með Keflavík á liðnu tímabili og var valinn efnilegasti leikmaður tímabilsins,“ segir í tilkynningu Keflvíkinga.
„Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir okkur Keflvíkinga að Kian ætli að halda áfram!“ segir enn fremur í tilkynningu Keflvíkinga.