16 af 26 aldrei spilað landsleik

Sex leikmenn Breiðabliks eru í hópnum.
Sex leikmenn Breiðabliks eru í hópnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorsteinn Halldórsson, nýráðinn landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur valið 26 leikmenn til æfinga síðar í mánuðinum. Sextán af 26 leikmönnum hópsins hafa aldrei spilað landsleik. 

Íslenska liðið átti að spila á sterku æfingamóti í Frakklandi í febrúar en vegna kórónuveirunnar gekk það ekki eftir. Þess í stað æfir liðið hér á landi frá 16. - 19. febrúar. Aðeins leikmenn sem spila hér á landi komu til greina í hópinn. 

Æfingahópur íslenska landsliðsins: 
Sandra Sigurðardóttir | Valur | 34 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Fylkir | 1 leikur
Telma Ívarsdóttir | Breiðablik
Kristín Dís Árnadóttir | Breiðablik
Barbára Sól Gísladóttir | Selfoss | 2 leikir
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | Breiðablik | 2 leikir
Hildur Þóra Hákonardóttir | Breiðablik
Elísa Viðarsdóttir | Valur | 38 leikir
Katla María Þórðardóttir | Fylkir
Sóley María Steinarsdóttir | Þróttur R.
Natasha Moraa Anasi | Keflavík | 2 leikir
Laufey Harpa Halldórsdóttir | Tindastóll
Málfríður Anna Eiríksdóttir | Valur
Sigríður Lára Garðarsdóttir | Valur | 20 leikir
Karitas Tómasdóttir | Selfoss
Andrea Mist Pálsdóttir | Breiðablik | 3 leikir
Ásdís Karen Halldórsdóttir | Valur
Þórdís Elva Ágústsdóttir | Fylkir
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir | Þróttur R.
Anna Rakel Pétursdóttir | Valur
Stefania Ragnarsdóttir | Fylkir
Agla María Albertsdóttir | Breiðablik | 33 leikir, 2 mörk
Diljá Ýr Zomers | Valur
Elín Metta Jensen | Valur | 54 leikir, 16 mörk
Karen María Sigurgeirsdóttir | Þór/KA
Magdalena Anna Reimus | Selfoss

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert