Hópur 21-árs landsliðsins staðfestur

Valdimar Þór Ingimundarson í leik 21-árs landsliðsins gegn Svíum í …
Valdimar Þór Ingimundarson í leik 21-árs landsliðsins gegn Svíum í haust. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Davíð Snorri Jónasson þjálfari 21-árs landsliðs karla í knattspyrnu hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins en Ísland leikur í riðli í sextán liða úrslitunum í Györ í Ungverjalandi 25. til 31. mars.

Alfons Sampsted og Arnór Sigurðsson eru ekki í hópnum þar sem þeir voru í gær valdir í A-landsliðshópinn. Þá gætu allt að fjórir leikmenn í viðbót verið kallaðir inn í A-landsliðið fyrir leikinn gegn Þýskalandi 25. mars og myndu þá ekki spila fyrsta leik Íslands í Györ.

Ísland mætir Rússlandi 25. mars, Danmörku 28. mars og Frakklandi 31. mars en tvö efstu liðin í riðlinum komast í átta liða úrslitin sem fram fara í júní.

Hópurinn er þannig skipaður:

MARKVERÐIR:

Patrik Sigurður Gunnarsson | Silkeborg | 10 leikir

Elías Rafn Ólafsson | Fredericia | 4 leikir

Hákon Rafn Valdimarsson | Grótta

VARNARMENN:

Finnur Tómas Pálmason | Norrköping | 3 leikir

Valgeir Lunddal Friðriksson | Häcken | 1 leikur

Róbert Orri Þorkelsson | Breiðablik | 3 leikir

Ísak Óli Ólafsson | SönderjyskE | 8 leikir, 2 mörk

Ari Leifsson | Strömsgodset | 17 leikir, 1 mark

Hörður Ingi Gunnarsson | FH | 15 leikir

MIÐJUMENN:

Ísak Bergmann Jóhannesson | Norrköping | 4 leikir

Andri Fannar Baldursson | Bologna | 3 leikir

Mikael Neville Anderson | Midtjylland | 13 leikir

Jón Dagur Þorsteinsson | AGF | 21 leikur, 5 mörk

Alex Þór Hauksson | Öster | 18 leikir, 1 mark

Willum Þór Willumsson | BATE Borisov | 17 leikir, 3 mörk

Kolbeinn Birgir Finnsson | Dortmund | 15 leikir

Þórir Jóhann Helgason | FH | 6 leikir

Kolbeinn Þórðarson | Lommel | 6 leikir

Stefán Teitur Þórðarson | Silkeborg | 14 leikir, 1 mark

SÓKNARMENN:

Brynjólfur Andersen Willumsson | Kristiansund | 12 leikir, 1 mark

Valdimar Þór Ingimundarson | Strömsgodset | 8 leikir, 1 mark

Sveinn Aron Guðjohnsen | OB | 15 leikir, 6 mörk

Bjarki Steinn Bjarkason | Venezia | 2 leikir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert