Knattspyrnumaðurinn Jónatan Ingi Jónsson hefur framlengt samning sinn við FH.
Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum en nýr samningur Jónatans gildir út árið 2022.
Jónatan, sem er 22 ára gamall, er uppalinn í Hafnarfirðinum og á að baki 51 leik í efstu deild þar sem hann hefur skorað sjö mörk.
Jónatan Ingi lék í þrjú ár með unglingaakademíu AZ Alkmaar frá 2015 til 2018 en sneri þá aftur í Hafnarfjörðinn eftir þrjú ár í Hollandi.
„Fyrir mér er þetta eina rökrétta skrefið, byggja ofan á það sem ég hef verið að gera undanfarna mánuði með FH,“ sagði Jónatan.
„Það er mikil tilhlökkun í mér, hópnum öllum og þjálfarateyminu að takast á við það verkefni að halda FH í fremstu röð,“ bætti Jónatan við.