Guðrún Arnardóttir var ein fjögurra leikmanna Íslands sem léku allan leikinn gegn Ítalíu er liðin mættust í vináttulandsleik í knattspyrnu ytra í dag. Að lokum hafði Ítalía betur í jöfnum leik, 1:0, en Guðrún var að spila sinn fyrsta landsleik í tvö ár.
„Heilt yfir áttum við fína spilkafla í fyrri hálfleik þó við missum aðeins dampinn rétt fyrir hlé. Svo erum við ekki jafn stöðugar í seinni hálfleik,“ sagði Guðrún í samtali við mbl.is í dag en Arianna Caruso skoraði sigurmark Ítala á 72. mínútu eftir smá vandræðagang á vörn íslenska liðsins.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Þorsteinn Halldórsson þjálfari vildu bæði meina að brotið hefði verið á Guðnýju Árnadóttur í aðdraganda marksins. „Ég sá það ekki almennilega en eftir að hafa talað við stelpurnar þá held ég að þetta hafi verið brot.“
Leikurinn var sá fyrsti undir stjórn Þorsteins sem tók við liðinu í janúar og sá fyrsti hjá liðinu frá því það lagði Ungverja að velli 1. desember og tryggði sér með því sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer á Englandi sumarið 2022.
„Það er gott að geta fengið alvöruleiki og komið öllum hópnum á sömu blaðsíðu. Við erum með nýjan þjálfara og Steini er að gefa leikmönnum tækifæri,“ sagði Guðrún við mbl.is.